Aðalvalmynd

Auglýsing

Boyz

Stelpz

Innskráningar kubbur

jáhh! farinn á gamla aftur!Ársæll Rafn Erlingsson

farinn á gamla bloggið aftur!

blog.central.is/fishbowl_nr9 !




Ársæll út!

More junk in the trunk than a honda!Ársæll Rafn Erlingsson

I know you like to do the Jane Fonda!!

Yee, eldsprækur hérna megin, en samt þreyttur. Búinn að sofa of mikið síðustu daga. Er að spá í að fara að hrista af mér þetta slen og fara að taka á. Hugsa að glasalyftur verði mitt aðal áhugamál í sumar ásamt bílum að sjálfsögðu og að reyna að týna einhverjum kílóum af sjálfum mér.

Yeah, heyrðuð rétt, kallinn er á leið í aðhald. Líst ekkert á það reyndar, too hard work, er of latur. Neinei, ég er duglegur þegar ég nenni :P Sjáum hvernig þetta gengur, ég er þó vongóður, er víst erfiðast að byrja. Allavega þægilegt að hugga sig við það, haha.

Anyways, er varla að nenna að hafa þetta lengra. Er ósáttur með comment á síðustu færslu! ég eyddi heilum 20 mínútum í hana :( Eins gott að ég fái fleiri núna!

Adios amigos,

Skæli út!

We all have the chance to take the lead or followÁrsæll Rafn Erlingsson

Váá, ég held að ég sé lélegasti bloggari í heimi. Er bara búinn að vera svo skít latur síðan ég kom heim. Þarf að fara að rífa mig upp af rassgatinu og fara að vera duglegur og eitthvað.. hehe.

En það var geðveikt gaman úti! Fengum alveg maaaad gott veður, geðveikan bíl og festivalið var alveg kliiiikkað! Eina sem var er að ég gleymdi myndavélinni í leigubílnum á leiðinni á flugvöllinn :/ Alveg dæmigerður ég að klúðra einhverju svoleiðis.

Ég nenni nú ekki að rekja alla ferðasöguna upp til agna hérna þar sem að ég er jú, latur með eindæmum þessa dagana en hérna kemur svona smá ágrip bara af ferðinni.

Við komum til LA klukkan 2300 að staðartíma og fórum svo í gegnum luggage claim og allt það og svo beint út á bílaleiguna þar sem að við héldum að biði okkar Mustang með blæju.. en neinei, steiktasta kona í bandaríkjunum afgreiddi okkur þarna og rétti okkur lykla að Nissan 350Z sem var vægast sagt klikkaður! og klikkað lítill líka reyndar.. haha. En jæja, off we went og gistum á einhverju hóteli þar sem að við vöktum gaurinn í móttökunni og hann var svo sofandi þegar hann var að afgreiða okkur, það var heví fyndið.

Daginn eftir var stefnan tekin út úr LA og beint þangað sem að hótelið okkar "nálægt" festivalinu var í Moreno Valley. Svalur "smábær" með 155 þúsund íbúa. Komumst nokkuð klakklaust á hótelið sem var bara það fínasta með sundlaug og allar græjur. Fórum svo fljótlega að koma okkur á festivalið sem að var í La Quinta en alls ekki hlaupið að því að finna það. Enduðum á því að spurja til vegar og fundum þetta fljótlega þá. Þegar við komum var alveg sjúklega mikið af fólki þarna á staðnum og við biðum í röð í örugglega 3 tíma eftir að fá miðana afhenta, var frekar svakalegt. En við komumst þó inn á endanum og sáum þetta fyrsta kvöld Björk, hluta af Artic Monkeys og Interpol minnir mig.. Man ekki meira í augnablikinu..

Lentum svo í ævintýri á bílastæðinu.. fundum ekki bílinn, löbbuðum í laaaangan tíma en fundum hann á endanum einsog allt annað sem að við vorum að leita að þarna, enda seigir strákar :P

á laugardeginum skelltum við okkur í mallið í Moreno Valley og eyddum nokkrum péningum. Fórum svo á festivalið og sáum meðal annara (minnið að svíkja mig) Red Hot Chilli Peppers! Þeir voru svo flottir! alveg klikkað show hjá þeim og bara sjúklega flottir gaurar, vissu alveg hvað þeir voru að gera. Vorum svo heillengi að komast útaf bílastæðinu.. báðir ógeðslega þreyttir og sveittir. Man lítið eftir ferðinni á hótelið.. man aðalega að hansi var að segja mér að fara ekki svona hratt :$ Ég hef aldrei verið svona þreyttur áður og var að keyra, hefði getað farið illa en gerði það ekki.. hehe.

Sunnudaginn var komið að aðalnúmerinu. Við sváfum vel þennan morgun til að undirbúa kveldið. Kíktum pínu í mallið þar sem að það var einhver tælendingur að káfa á hansa.. var samt einhver nddari, hehe. Fórum á Outback steikhús sem að er Ástraskt og alveg tuddagóður matur þarna. Fórum snemma á Festivalið og sáum Kaiser Cheifs, Placebo, Willie Nelson og RAGE AGAINST THE MACHINE! djöfull voru þeir sjúklega góðir og stóðust allar þær væntingar sem að ég allavega bar til þessara tónleika. Alveg gjöðveik stemmning.

Restin af ferðinni fór bara í að rúnta og skoða og fá tattoo og vera veikir og svona.. tók reyndar ágætis fyllerí þarna síðasta daginn en það er önnur saga.

en ég nenni ekki meiru, þarf að fara að væla í hljómsýn þar sem að nýja þvottavélin er biluð.

gracias fyrir að nenna að lesa, nú er bara að kommenta :P

adios amigos, ætla að reyna að vera duglegri að blogga núna kannski.

The silence never endsÁrsæll Rafn Erlingsson

Yo!

Ákvað að blogga þar sem að ég er með netið þessa stundina. Er uppá skaga.

Alveg nóg að gerast þennann mánuðinn, er að græja jeppann þannig að hann verður reddí fyrir páskadag, undirbúa utanlandsferð og svo alveg nóg að gera í vinnunni :Þ

Jeppinn er kominn með kastara. Er ekkert smá vígalegur með kastarana og augnbrýr og svona dökkblár og glansandi. Hendi svo 33" undir ásamt brettaköntunum á laugardaginn. Fær vonandi fulla 08 skoðun í vikunni þar sem að ég er að fara að henda undir hann nýjum fjöðrum á eftir bara :D

Vááááá, ég hlakka svo til að fara út, þetta verður gjeeeeeggjuð ferð. Fyrir þá sem að ég er ekki búinn að segja samt þá erum við Hansi að fara til Californiu á tónleikafestival, www.coachella.com, það sem að Rage Against The Machine eru meðal hljómsveita. Verðum svo í Los Angeles í nokkra daga eftir festivalið að chilla bara og rúnta um og skoða. Verður bara gaman. Býst við að koma með blogg þaðan efað ég nenni en annars kemur bara blogg með myndum eftir festivalið.

En já, hef fátt annað að segja, þarf að fara að kaupa málningu á felgurnar :P

Staður færslunnar: Akranes, no doubt

Kisa færslunnar: Hetja, hún er alveg snar, haha

Vinur færslunnar: Hansi :P

Smell ya later!

For heavens sakeÁrsæll Rafn Erlingsson

Hola!

Nýtt blogg skrifað frá höfuðstað vesturlands, Akranesi. Ákvað að skella mér á skagann í morgun, það er alveg æði að vera hérna, allir tjillaðir og bara gaman. Annað en stressið þarna í Reykjavík :S

Er að spá í að hafa eitthvað að segja í þessu bloggi svona til tilbreytingar :P Þó svo að ég hitti mikið af mínum vinum og kunningjum er maður ekki nógu duglegur í því, maður þarf að fara að vera duglegri að hafa samband og svona.

Annars var ég að kaupa mér "nýjan" bíl. Suzuki Fox árg. '88. Stendur til að setja hann á 33" dekk og mála hann. Keypti meira að segja málningu í dag! Dökkbláa á skelina og svarta á stuðara og brettakanntana, á eftir að koma heví vel út þegar hann verður fullbreyttur en það mun gerast bara á næstu vikum. Mála hann samt líklega um næstu helgi og geri fínann. Þarf svo að fá undir hann fjaðrir að aftan og þá fær hann 08 skoðun! Þegar ég er kominn með hana þá verður ráðist í að skera brettin til til að koma 33" undir og henda á hann brettakönntunum. Verður án efa einn vígalegasti bíll sem að ég hef átt Svalur

En að öðrum málum. Systir mín og Addi Mummi kærastinn hennar voru að trúlofa sig um helgina! Óska þeim til hamingju með það. Einsog flestir vita þá eiga þau von á litlum krakka líka, mig hlakkar endalaust mikið til að fá lítið frændaskrípi í heiminn :D Já, ég veit að þetta er strákur, finna það einhvernveginn bara á mér :P En já, enn og aftur til hamingju Inga og Addi :**

Fór á árshátíð um helgina, brjááááálað gaman! Papar að leika fyrir dansi ásamt Hvannadalsbræðrum og var Töframaðurinn Bjarni veislustjóri. Þetta var sjúklega gamann og gaman að vita að maður er að vinna með heví hressu fólki. Stöðin okkar hélt klárlega uppi fjörinu á dansgólfinu Svalur

En endilega kommenta!!

Tónlist Færslunnar: Wu tang, Looptroop og önnur negramúsík

Fólk Færslunnar: Klárlega Addi og Inga

Mamma Færslunnar: Mamma mín, fyrir að útbúa yndislegan afmælismat daginn fyrir afmælið mitt :D

Staður Færslunnar: AKRANES!

Bíll Færslunnar: Da Foxy Fox

bææææÆ!

Ársæll Rafn Erlingsson

Blessar!

Jæja, kominn tími á blogg. Lítið gerst þó undanfarið, klessti bílinn, lagaði bílinn.. Fátt annað gerðist.

Lennti í því að klessa bílinn.. ég veit! ég má ekki eiga bíl lengur en 2 vikur þá skemmi ég hann. En það var samt ekki svo mikið, náði að laga það samt að mestu, þarf að fara að fá mér ljós. Annars er 70 þúsund króna Volkswagen-inn alveg að standa sig, merkilegt nokk.

en vá, hef ekkert til að væla yfir eða skrifa um. Var bara verið að ýta á mig að blogga *hóst*sveppimella*hóst*

anyways, einsog ég sagði, ekkert til að skrifa um.

Þáttur Færslunnar: Seinfeld

Tónlist færslunnar: Hommatransið sem er alltaf á Flass FM, magnað leiðinlegt en lætur vinnuna líða hraðar.

Drykkur Færslunnar: Bjór.. þó að ég hafi ekki fengið mér svoleiðis aaaaalltof lengi þá langar mig endalaust í Skömmustulegur

90's ftw!Ársæll Rafn Erlingsson

Þú ert 90´s kid ef þú:

Þú getur klárað þessa setningu [ice ice _ _ _ _ ]

Þú manst eftir því þegar það var ennþá spennandi að vakna á laugardagsmorgnum til að horfa á barnaefnið...

Þú færð ennþá "urge" til að segja "NOT" á eftir næstumþví öllu

Það var gert út um málin með "steinn skæri blað" eða "ugla sat á kvisti"...

Þegar lögga og bófi var daglegt brauð

Þegar við fórum í feluleik þangað til við gátum ekki meir

Þegar við vorum vön að hlýða foreldrum okkar... ( að vissu marki )

Þú hlustaðir á útvarpið allan liðlangan daginn til að bíða eftir uppáhaldslaginu þínu, til að taka það upp á kasettutækið..

Þú manst eftir því þegar Super Nindendos og Sega Genisis urðu vinsælir

Þú horfðir alltaf á America's Funniest home videos

Þú horfðir á Home Alone 1, 2, og 3 og reyndir að gera sömu trikk

Þú manst eftir því þegar Jójó voru kúl

Þú safnaðir körfuboltamyndum

Þú horfðir á Batman, Aladín, Turtles og Pónýhestana...

Þú manst eftir sleikjóunum sem voru á hring til að hafa á puttanum..

Þú manst þegar það áttu ekki allir geislaspilara

Þú bjóst til gogg þegar þú varst lítill...

Þú áttir tölvugæludýr

...eða Furbie

Þú hefur ekki alltaf átt tölvu, og það var töff að vera með Netið

Og Windows '95 var best

Michael Jordan var aðal hetjan..

Kærleiksbirnirnir

Þú safnaðir lukkutröllum

Og áttir vasadiskó

Þú kannt Macarena dansinn utanað

Þú veist af hverju 23 er kúl tala

Áður en að Myspace varð vinsælt,

Áður en Netið kom og enginn vissi hvað sms var..

Áður en ipod kom til sögunnar

Áður en PlayStation 2 og Xbox voru til,

Þegar strigaskór með blikkljósum voru málið

Og þú leigðir spólur, ekki dvd,

Og það var eiginlega enginn með símanúmerabirti

Og þegar við hringdum í útvarpið til að reyna að fá uppáhalds lagið okkar spilað til að hlusta á í vasadiskóinu

Áður en við áttuðum okkur á því að allt mundi breytast


Good old times, mig langar að vera 12 ára aftur :)

Þú veist það vel að Jesú var bara hippi!Ársæll Rafn Erlingsson

'ola!

Shiii, ligg bara vekur hérna heima, skítlegt. Ætlaði ekki að gera neitt í dag, horfa á Aqua Teen Hunger Force eða Trailerpark Boys eða eitthvað. Samt finnst manni súrt að geta ekki farið út þó að maður hafi ekkert ætlað að gera það.

Er alveg að fíla mig í vinnunni, er að fara að taka fyrstu helgina mína sem vaktstjóri. Verður örugglega gaman, vona bara að ég verði ekki veikur á morgun líka.

Ventoinn er kominn á 17" Raceline felgur! Hann er baaara töff á þeim. Eina sem vantar er lækkun og filmur og betri græjur þá er hann reddí Ullandi

Fékk um daginn þættina Aqua Teen Hunger Force um daginn hjá lexa, hafði ekki mikla trú á þeim en váááá, þvílík sýra! Þetta er sjúklega súrt og ógeðslega fyndið. Þetta er um Master Shake, Meatwad og Frylark. Shake er, einsog nafnið gefur til kynna, talandi sjeikdolla og er ótrúlega sjálfselskur, heimskur og leiðinlegur við Meatwad. Meatwad er (held ég) Kjötklessa, talandi að sjálfsögðu. Frylark er heví gáfaður frönskupoki.. ókei, þetta hljómar kannski ekki voðalega spennandi en þetta er ógeðslega fyndið.

Lag færslunnar: Í frelsarans Jesú nafni - Siggi Lauf

Hugmynd færslunnar: hugmyndin hans Hans.. kemur í ljós hvað það er, ég er svo spenntur en vill ekki segja strax!

Systir Færslunnar: Inga Sysst (og kristín smá líka því að hún kom með mat handa mér)



Rokk og ról í frelsarans nafni! bææ!


It's not that you're breaking my heart, I'm just loosing a friendÁrsæll Rafn Erlingsson

ÚjE, nýtt blogg, nýr bíll, flutningar og nýtt djobb! Gerist það betra? tjahh, það má deila um það.

Er orðinn vaktstjóri á Select, það er heví fínt, ætla að prófa að axla meiri ábyrgð. Það verður seint sagt að ég hafi verið ábyrgðarfullur áður en ég er farinn að taka þetta soldið alvarlega og ætla að standa mig. Ætlaði að kaupa mér bíl á lánum um daginn, hætti við það sem betur fer og keypti mér ágætis Volkswagen Vento árg. '96 á 70 þúsund. Eini gallinn er að hann er grænn :s en það er í lagi, hann er allavega dökkgrænn.

Shiii, Anna María (85) bara farin til noregs í hálft ár! ég náði ekki einu sinni að kveðja hana almennilega :(  Svo eru Tinna og Axel farin til danmerkur :( náði ekki að kveðja þau heldur, frekar súrt

En já! ég er að fara að flytja í bæinn :D Fæ leigt herbergi í kópavoginum með aðgang að flestu sem að ég þarf til að lifa af :P Ég er orðinn nokkuð spenntur og er þetta liður í því prósessi að verða sjálfstæður og að axla ábyrgð. Ég er nú einu sinni að verða 21 árs!

Talandi um aldur, þá á hún Anna María afmæli í dag :D anna-trains.blog.is TIL HAMINGJU ANNA!

Svo á hún yndislega systir mín afmæli eftir 1 og hálfan tíma :D TIL HAMINGJU INGIBJÖRG!

o, sese, nenni varla að hafa þetta lengra í dag. Þarf að fara að koma mér í sturtu og svo að sofa.

en já, sorry snorri að ég bloggaði ekki í fyrradag, ég steinsofnaði fyrir framan sjónverpið og með tölvuna í fanginu.

Bíll Færslunnar: klárlega ventoinn!

Frændi Færslunnar: Snorri, fyrir að ýta bílnum mínum úr skaflinum sem að ég tók hammara í :$


ADIOS!

Fake plastic treesÁrsæll Rafn Erlingsson

Jæja, komið árið 2007.. ég hélt að ég myndi ekki lifa svona lengi. Ætti að vera kominn á ellilífeyri er orðinn svo gamall :/ Fann hrukku í gær en komst reyndar að því í dag að þetta er bólga, fékk svo skemmtilegt höfuðhögg þegar ég var skallaður á nýársballinu. Það var nú reyndar óvart, við Áskell vorum bara svo að fíla okkur á dansgólfinu að hann skallaði mig  Ullandi 

En vá, finnst þetta ár ekki byrja vel, jaðrar við þunglyndi. Það samt kætir hugann ekkert meira en bílakaup og www.baggalutur.is Glottandi Búinn að fara á Baggalút og vááá! þetta er ein besta steypa á internetinu í dag. Efað þið farið í skrípó á Baggalút þá getiði ekki annað en að fara í gott skap. Varðandi þetta með bílakaupinn þá gæti vel verið að ég verði á nýjum bíl í enda vikunnar ;) Kemur kannski ekki á óvart þar sem að ég hef verið duglegur að skipta um bíla bara síðan að ég fékk prófið Saklaus En ég stefni nú á að eiga þennan kannski í nokkra mánuði.

Fékk leiðinlegar fréttir núna fyrir jól, kisan okkar sem er 16 ára gömul (held ég) er komin með krabbamein :/ Þurfum að lóga henni á næstu vikum, heví leiðinlegt. En við erum allavega með Hetju, þó að ekkert komi í staðinn fyrir gömlu.


Tónlist færslunnar: Pendulum

Bíll Færslunnar: Kannski nýji bíllinn :P

En ég nenni ekki að hafa þetta lengra, adios
Síða 1 af 2

Teljari

Könnun

Er ég sætur eða bestur?

Gagnasafn

Klukkan